ÍBÚASAMTÖK MIÐBORGAR REYKJAVÍKUR

News


Fréttir
Um samtökin
Lög
Starfið
Fundargerðir
Greinar



Aðalfundur ÍMR 2024

Aðalfundur Íbúasamtaka Miðborgar Reykjavíkur verður haldinn í Spennistöðinni við Austurbæjarskóla fimmtudaginn 18. apríl kl 20. Venjuleg aðalfundarstörf.

Íbúar í miðborginni eru hvattir til að mæta og hafa áhrif á starf samtakanna.

Stjórn ÍMR

26. mars 2024

Ný stjórn ÍMR kjörin á aðalfundi 2023

Aðalfundur Íbúasamtaka Miðborgar Reykjavíkur var haldinn í Spennistöðinni við Austurbæjarskóla 27. apríl sl.

Nokkrar breytingar urðu á stjórn samtakanna. Sigrún Tryggvadóttir, sem tók við starfi formanns á síðasta ári, var kjörin til áframhaldandi setu til næstu tveggja ára.

Úr stjórn gengu Ásdís Káradóttir, Guðrún Erla Geirsdóttir, Matthildur Skúladóttir, Óttarr Makuch og Sigurður Sigurðsson. Þeim er kærlega þakkað sitt framlag til samtakanna.

Nýja stjórn skipa Sigrún Tryggvadóttir (formaður), Birna Eggertsdóttir, Bjarni Agnar Agnarsson, Holberg Másson, Margrét Einarsdóttir, Pétur H. Jónsson og Sindri Freyr Ásgeirsson. Varamenn eru Guðjón Óskarsson og Guðmundur Ólafsson.

Stjórn ÍMR

2. júlí 2023

Ný stjórn ÍMR kjörin á aðalfundi 2022

Aðalfundur Íbúasamtaka Miðborgar Reykjavíkur var haldinn í Spennistöðinni við Austurbæjarskóla fimmtudaginn 28. apríl sl.

Nokkrar breytingar urðu á stjórn samtakanna. Sigrún Tryggvadóttir var kjörin formaður og tók við keflinu af Arnari Guðmundssyni. Auk Arnars gáfu Einar Örn Thorlacius, Eva Huld Friðriksdóttir, Páll Hilmarsson og Magnús Skúlason ekki kost á sér áfram. Þeim er kærlega þakkað sitt framlag til samtakanna.

Ný í aðalstjórn þau Birna Eggertsdóttir og Óttarr Makuch. Margrét Einarsdóttir gaf áfram kost á sér til stjórnarsetu og Ásdís Káradóttir og Guðrún Erla Geirsdóttir hefja nú sitt síðara ár í stjórn en þær voru kjörnar í fyrra ásamt Sigrúnu, nýkjörnum formanni. Holberg Másson og Matthildur Skúladóttir eru ný í varastjórn og Sigurður Sigurðsson er áfram varamaður.

Aðalfundurinn samþykkti annars vegar ályktun um viðbrögð við ónæði íbúa í miðbænum af völdum hávaða frá skemmtistöðum og hins vegar ályktun um að regnboginn fái áfram að liðast upp Skólavörðustíginn.

Stjórn ÍMR

5. maí 2022

Aðalfundur ÍMR 2022

Aðalfundur Íbúasamtaka Miðborgar Reykjavíkur verður haldinn í Spennistöðinni við Austurbæjarskóla fimmtudaginn 28. apríl kl. 20. Venjuleg aðalfundarstörf.

Íbúar í miðborginni eru hvattir til að mæta og hafa áhrif á starf samtakanna.

Skemmtiatriði fyrir fund.

Stjórn ÍMR

25. apríl 2022

Ný stjórn ÍMR kjörin

Nokkrar breytingar urðu á stjórn Íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur á aðalfundinum 2. mars sl. Benóný Ægisson lét af embætti formanns eftir langt og farsælt starf. Auk hans gáfu þær Guðrún Janusdóttir gjaldkeri, Ragnhildur Zoega varaformaður, Vilborg Halldórsdóttir meðstórnandi og Kári Sölmundarson fulltrúi í varastjórn ekki kost á sér áfram. Íbúasamtökin þakka þeim öllum þeirra framlag.

Arnar Guðmundsson var kjörinn nýr formaður ÍMR. Auk hans eru ný í aðalstjórn þau Ásdís Káradóttir, Pétur H. Jónsson og Sigrún Tryggavadóttir. Sigurður Sigurðsson er nýr í varastjórn. Eva Huld Friðriksdóttir, Guðrún Erla Geirsdóttir og Margrét Einarsdóttir eiga áfram sæti í aðalstjórn og þeir Einar Thorlacius, Magnús Skúlason og Páll Hilmarsson í varastjórn. Sjá má verkaskiptingu nýrrar stjórnar á síðunni Um samtökin og fundargerðin er komin hér á vefinn.

Á aðalfundinum var samþykkt sú breyting á lögum samtakanna að aðalfund skuli halda í apríl ár hvert. Aðalfundurinn nú fór fram í byrjun mars eftir ítrekaðar frestanir vegna sóttvarnaraðgerða og gert er ráð fyrir að næsti reglulegi aðalfundur fari fram í apríl 2022.

Aðalfundurinn samþykkti einnig áskorun til borgaryfirvalda um að efna til fræðsluátaks um mikilvægi þess að hirða upp eftir hunda samhliða breytingum á fyrirkomulagi hundaeftirlits. Þá var því beint til stjórnar að minna á menningarsögulegt mikilvægi Austurbæjarskóla og hvetja til þess að fyrirhuguð hönnun göngugatna taki mið af sögu og yfirbragði miðbæjarins.

Stjórn ÍMR

16. mars 2021

Aðalfundur ÍMR 2021

Aðalfundur Íbúasamtaka Miðborgar Reykjavíkur verður haldinn í Tjarnarsal Ráðhússins þriðjudaginn 2. mars kl 18 með fyrirvara um að sóttvarnarreglur leyfi slíkar samkomur á þessum tíma. Venjuleg aðalfundarstörf.

Komið hefur fram lagabreytingartillaga en lagt er til að 5. grein samtakanna verði: Aðalfund skal halda í apríl ár hvert.
Nú er 5. grein svohljóðandi: Aðalfund skal halda að hausti ár hvert.

Íbúar í miðborginni eru hvattir til að mæta og hafa áhrif á starf samtakanna

Stjórn ÍMR

23. febrúar 2021

Aðalfundi frestað

Aðalfundi Íbúasamtaka Miðborgar sem halda átti í Ráðhúsinu 15. október er frestað um óákveðin tíma vegna fjöldatakmarkana sóttvarnarlæknis

Stjórn ÍMR

2. október 2020

Aðalfundur ÍMR 2020

Aðalfundur Íbúasamtaka Miðborgar Reykjavíkur verður haldinn í Tjarnarsal Ráðhússins fimmtudaginn 15. október kl 18 með fyrirvara um að sóttvarnarreglur leyfi slíkar samkomur á þessum tíma. Nánar auglýst hér eða á Facbook síðu ÍMR þegar nær dregur.

Venjuleg aðalfundarstörf og íbúar eru hvattir til að mæta og hafa áhrif á starf samtakanna

Stjórn ÍMR

2. október 2020

Fréttabréf ÍMR 2020

Út er komið fréttabréf Íbúasamtaka Miðborgar 2020. Pdf-útgáfa af því er  hér

2. október 2020

Ályktun vegna vanhirtra húsa

Í miðborg Reykjavíkur eru tugir húsa sem ekki eru nýtt og hafa sum þeirra staðið auð og vanrækt í áratugi.Stjórn ÍMR ályktaði um það og ályktunin er hér með mynddæmum

12. júlí 2020

Skammdegisgleði 2020

Á annað hundrað manns litu við á Skammdegisgleði Íbúasamtakanna í Spennistöðinni, hlustuðu á Kára Egilsson og Skólahljómsveit Vestur og Miðbæjar, dönsuðu salsa, bjuggu til teikninmyndabækur og þáðu veitingar. Meira

9. febrúar 2020

Bætt verslun og þjónusta

Íbúasamtök Miðborgar Reykjavíkur boða til hugflæðifundar um bætta verslun og þjónustu við íbúana í miðbænum laugardaginn 9. nóvember kl. 13-15 í Spennistöðinni, félags og menningarmiðstöð miðborgarinnar. Meira

6. nóvember 2019

Umferð í miðbænum

Fyrsta málþing vetrarins hjá Íbúasamtökum Miðborgar er um samgöngur í miðbænum. Málþingið verður í Spennistöðinni, félags og menningarmiðstöð miðborgarinnar laugardaginn 12. október kl. 13-15. Fjallað verður um umferðarmál, almenningssamgöngur, akstur með ferðamenn og ýmislegt fleira sem lýtur að umferð um miðbæinn. Meira

10. október 2019

Aðalfundur 2019

Aðalfundur Íbúasamtaka Miðborgar Reykjavíkur verður haldinn í Spennistöðinni, félags og menningarmiðstöð miðborgarinnar fimmtudaginn 17. október kl. 20
Venjuleg aðalfundarstörf og íbúar eru hvattir til að mæta og hafa áhrif
Stjórn ÍMR

4. október 2019

Fréttabréf ÍMR 2019

Út er komið fréttabréf Íbúasamtaka Miðborgar 2019. Pdf-útgáfa af því er  hér

4. október 2019

Sambýlið við ferðaþjónustuna

Málþingið Sambýlið við ferðaþjónustuna verður haldið í Spennistöðinni, félags og menningarmiðstöð miðborgarinnar laugardaginn 6. apríl kl. 13-15. Málþingið hefur það markmið að íbúar miðbæjarins geti rætt milliliðalaust við rekstraraðila í ferðaþjónustu..  Meira

29. mars 2019

Aðalfundur ÍMR 2018

Aðalfundur Íbúasamtaka Miðborgar var haldinn í Iðnó, efri hæð mánudaginn 15. október kl. 20. Venjuleg aðalfundarstörf.
Íbúar miðborgarinnar eru hvattir til að koma og hafa áhrif á hverfið sitt.
Stjórnin

Fundargerð aðalfundar

4. október 2018

Málþingi aflýst

Málþingi Íbúasamtaka Miðborgar Reykjavíkur með þingmönnum Reykjavíkur norður sem fara átti fram laugardaginn 29. september 2018 í Ráðhúsi Reykjavíkur var aflýst vegna dræmrar þátttöku þingmannanna.  Meira

29. október 2018

Fréttabréf ÍMR

Út er komið fyrsta fréttabréf Íbúasamtaka MIðborgar. Í fréttabréfinu eru upplýsingar um starf ÍMR, verkefni og viðburði.  Fréttabréfið á Pdf-formi

3. ágúst 2018

UmHverfisgöngur ÍMR

UmHverfisgöngur eru tilraunaverkefni Íbúasamtaka Miðborgar í samstarfi við verkefnisstjóra miðborgarmála. Þetta eru göngur um afmörkuð svæði eða götur í hverfinu og er tilgangur þeirra að vera samráðsvettvangur borgaryfirvalda við íbúa til að bæta umhverfi þeirra.

Vilt þú standa fyrir UmHverfisgöngu í þinni götu? Sendu okkur þá póst á midbaerinn@midbaerinn.is með upplýsingum um stað og stund. Meira

12. júlí 2018

Tónsmiðja Péturs Hafþórs

Laugardaginn 27. janúar kl. 13-15 standa Íbúasamtök Miðborgar og Pétur Hafþór Jónsson tónlistarkennari fyrir tónsmiðju í Spennistöðinni, félags- og menningarmiðstöð miðbæjarins. Taktu með þér hljóðfærið þitt eða nýttu hljóðfærin á staðnum.

Tónlist er annað og meira en síbylja og söluvara. Tónlistarflutningur er félagslegt atferli ekki síður en listrænn gjörningur og nautn að taka þátt. Sjálf tónlistin skapar reglu og samhengi og auðveldar öllum að vera með. Ýmis hljóðfæri verða tekin til handargagns og sýnt fram á, að allir geta tekið sóló, leikið bassagang og verið virkir í góðum rytma. Ýmsum stílbrigðum beitt til að svo megi verða, blús, suður-amerískum takti og óforskömmuðu poppi.

Tónsmiðjan er hluti af verkefni Íbúasamtakanna Heil brú og þáttaka í henni er ókeypis og öllum heimil.

25. janúar 2018

Dansað í Spennistöðinni

Vetrarstarf ÍMR í Spennistöðinni hefst laugardaginn 16. september en þá verður starfrækt þar danssmiðja sem kennarar Kramhússins stjórna. Dagskráin er sem hér segir:

Kl. 13:00 Breikdans
Kl. 13:30 Skapandi dans
Kl. 14:00 Bollywood dans
Kl. 14:30 Balkandans

Danssmiðjan er liður í verkefni Íbúasamtakanna Heil brú og er aðgangur ókeypis og heimill fólki á öllum aldri. Gráupplagt tækifæri fyrir fjölskylduna til að dansa saman í gengum lífið

12. september 2017

Vorblót ÍMR

Vorblót Íbúasamtakanna í Spennistöðinni 13. maí heppnaðist vel. 70-80 manns kíktu við og fengu sér grillaða pylsu, bjuggu til flugdreka og hlustuðu á fróðlega fyrirlestra um garðyrkju.

Tveir félagar úr blásarasveitinni Ventus Brass tóku á móti gestum með lúðrablæstri, Arite Fricke kenndi gerð einfaldra flugdreka sem voru óspart prófaðir, Kristinn H. Þorsteinsson fjallað um vorverkin í garðinum og fleira tengt garðyrkju, Bryndís Björk Reynisdóttir fjallaði um ræktun ætra plantna við þröng skilyrði og Hafsteinn Helgason sagði frá hvítlauksrækt sinni.

Vorblótið var hluti verkefnisins Heil brú en það eru smiðjur og málþing sem haldin eru í Spennistöðinni. Reykjavíkurborg styrkir verkefnið.

20. júlí 2017

Íbúasamtök ræða málin

Þriðjudaginn 28. mars héldu stjórnir íbúasamtaka þriggja hverfa fund í Spennistöðinni, félags og menningarmiðstöð miðborgarinnar, þar sem rædd voru sameiginleg hagsmunamál hverfanna. Þetta voru Íbúasamtök Miðborgar, Íbúasamtök Vesturbæjar og Íbúasamtök 3. hverfis, en því tilheyra Norðurmýri, Holt og Hlíðar. Meira

7. apríl 2017

Góðir grannar

Íbúasamtök Miðborgar Reykjavíkur efndu til málþings um nábýlið í miðborginni laugardaginn 4. mars 2017 í Spennistöðinni – félags- og menningarmiðstöð miðborgarinnar. Miðborg Reykjavíkur er þéttsetnasta svæði landsins og markmið málþingsins var að gera sambýlið þar auðveldara, öruggara og skemmtilegra. Lýsing af málþinginu er hér

7. apríl 2017

Börnin í miðbænum

Annað málþing vetrarins 2016-17 var haldið 12. nóvember í Spennistöðinni. Þar var fjallað um aðstæður barna og unglinga í miðborginni, spurt hvað væri fjölskylduvænt hverfi og hvort miðborgin uppfyllti öll skilyrði til að teljast fjölskylduvæn. Lýsing af málþinginu er hér

7. apríl 2017

Málþingið Góðir grannar

Íbúasamtök Miðborgar Reykjavíkur halda málþing um nábýlið í miðborginni laugardaginn 4. mars kl. 13 í Spennistöðinni (við Austurbæjarskóla)
Fundarstjóri er Viðar Eggertsson

Dagskrá:

Hver er réttur okkar?
Bryndís Héðinsdóttir lögmaður og Tinna Andrésdóttir lögfræðingur hjá Húseigendafélaginu fjalla um grenndar- og nágrannarétt

Bætum umhverfið!
Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir verkefnisstjóri hjá Umhverfis- og skipulagssviði, Benóný Ægisson formaður Íbúasamtakanna og fulltrúar frá lögreglunni fjalla um nágrannavörslu, hverfisgöngur, veggjakrot og skemmdarverk

Gerum eitthvað skemmtilegt!
Ýmsir reynsluboltar segja frá götu- og hverfishátíðum: Stefán Halldórsson – Skrall í Skaftahlíð, Margrét M Norðdahl – Norðurmýrarhátíð, Gunnar B. Ólason - Grettisgötuhátíð

Íbúar í miðborginni eru hvattir til að mæta.

28. febrúar 2017

Leiksmiðja í Spennistöðinni

Íbúasamtök Miðborgar halda áfram með verkefnið Heil brú á þessu ári en laugardaginn 4. febrúar kl. 13-15 verður Leynileikhúsið með leiksmiðju fyrir alla fjölskylduna í Spennistöðinni og leiðbeinandinn er enginn annar en sjálfur leynileikhússtjórinn Agnar Jón Egilsson.

1. febrúar 2017

Áfangaskýrsla um Spennistöðina

Í nóvember 2016 var lokið tveggja ára tilraunatíma um rekstur Spennistöðvarinnar, félags og menningarmiðstöðvar miðborgarinnar. Af því tilefni gerði húsráð Spennistöðvarinnar áfangaskýrslu en fulltrúar Íbúasamtaka Miðborgar sátu í húsráðinu. Áfangaskýrslan er hér á Pdf-formi

16. desember 2016

Ferðamannagisting í Miðborg

Íbúasamtök Miðborgar hafa sent borgaryfirvöldum áskorun um að takmarka fjölda gististaða í Miðborginni til að vernda íbúabyggðina þar.

Meira

30. nóvember 2016

Börnin í miðbænum

Annað málþing vetrarins um miðborgina þar sem íbúarnir hafa orðið verður haldið 12. nóvember kl. 13 í Spennistöðinni, félags og menningarmiðstöð Miðborgar. Íbúasamtök Miðborgar, Foreldrafélag og Nemendafélag Austurbæjarskóla og foreldrafélög leikskóla í hverfinu standa að málþinginu og er það hluti af verkefninu Heil brú Þar verður fjallað um aðstæður barna og unglinga í miðborginni. Spurt verður hvað sé fjölskylduvænt hverfi og hvort miðborgin uppfylli öll skilyrði til að teljast fjölskylduvæn.

Meira

10. nóvember 2016

Galdrastafa og flugdrekasmiðja

Næstkomandi laugardag 15. okt verður haldin galdrastafa og flugdrekasmiðja í Spennistöðinni, félags- og menningarmiðstöð miðborgarinnar við Austurbæjarskóla. Flugdrekasérfræðingurinn Arite Fricke sem er grafískur hönnuður og foreldri í Austurbæjarskóla leiðbeinir, búnir verða til einfaldir flugdrekar úr símaskrám og bambusstöfum og kyngimagnaðir galdrastafir. Það tekur um 30-45 mín. að búa til einfaldan flugdreka, 10 þátttakendur komast að í einu og ef veður leyfir þá geta þátttakendur prófað drekana úti. Í galdrastafasmiðjunni verða notaðir kartöflustimplar og þekjulitir til að búa til rammíslenska galdrastafi sem jafnvel geta látið óskir rætast. Aðgangur er ókeypis, allt efni og áhöld eru til staðar.

12. október 2016

Blúsað í Heilli brú

Næstkomandi laugardag 8. október kl. 13 verður blúsað í Spennistöðinni -  félags- og menningarmiðstöð miðborgarinnar sem er við hlið Austurbæjarskóla. Þá opnar blússmiðja sem blúsfrömuðurinn Halldór Bragason, íbúi í miðbænum og fyrrum nemendi í Austurbæjarskóla og Pétur Hafþór Jónsson tónmenntakennari í Austurbæjarskóla leiða. Íbúar miðborgarinnar eru hvattir til að mæta með hljóðfærin sín og taka þátt eða bara mæta með velstillt eyru  og hlusta á nágranna sína blúsa af hjartans lyst.

6. október 2016

Sambýlið við ferðaþjónustuna

Málþing Íbúasamtaka Miðborgar laugardaginn 24. september kl. 13-15 í Spennistöðinni, félags og menningarmiðstöð miðborgarinnar.

DAGSKRÁ:
Ávarp: Benóný Ægisson formaður Íbúasamtaka Miðborgar
Framsöguerindi:
Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri
Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi og formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar
Áshildur Bragadóttir forstöðumaður Höfuðborgarstofu
Áslaug Friðriksdóttir borgarfulltrúi, situr í hverfisráði Miðborgar
Anna María Bogadóttir arkitekt, ráðgjafi stýrihóps um málefni miðborgarinnar
Runólfur Ágústsson verkefnastjóri Fluglestarinnar

Kaffihlé

Orðið er laust. Íbúar geta tjáð sig um málið eða beint spurningum til frummælenda eða annarra fundargesta

Fundarstjóri er Katrín Anna Lund prófessor í land og ferðamálafræðum við Háskóla Íslands

Íbúar í miðborginni eru hvattir til að koma og láta í sér heyra um sambýlið við ferðaþjónustuna.

Málþing um miðborgina - íbúar hafa orðið er hluti af verkefninu Heil brú.

20. september 2016

Heil brú í Miðbænum

Við hefjum verkefnið Heil brú laugardaginn 10. september kl. 13-15 en þá ætlum við að leika okkur saman í Spennistöðinni. Þá munu nemar á 3. ári í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands stjórna leikjum og hópefli. Ef veður er gott verðum við úti en ef það er vont inni í hinni rúmgóðu Spennistöð. Boðið verður upp á kaffi og saft og eru íbúar hvattir til að mæta með eitthvað smáræði ef þeir hafa tök á því.

Verkefninu Heil brú er hleypt af stokkunum til að tengja saman alla notendur Spennistöðvarinnar og eru einkunnarorð þess: Sköpum, ræðum og leikum okkur saman. Markmiðið með verkefninu er að bæta hverfisandann og samheldnina í hverfinu og er það er gert með því að halda smiðjur og málþing annan hvern laugardag í Spennistöðinni og þær eru ætlaðar öllum íbúum í miðborginni.

Meira

8. september 2016

Áskorun til borgarstjórnar

Stjórn Íbúasamtaka Miðborgar skorar á borgarstjóra að beita sér fyrir því að aukið samráð verði haft við íbúa miðborgarinnar í skipulagsmálum og að þeir fái að hafa meiri áhrif á framtíðaruppbyggingu hverfisins. Stjórnin vill vekja athygli á því að ekkert bólar á vinnu við nýtt hverfisskipulag miðborgarinnar en  vinna við slíkt skipulag hefur verið í gangi allt frá árinu 2013 í öðrum borgarhlutum

Meira

26. maí 2016

Aðalfundur 2016

Aðalfundur Íbúasamtaka Miðborgar verður haldinn í Iðnó, efri hæð, laugardaginn 30. apríl kl. 11. Venjuleg aðalfundarstörf.

Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum mun Ólöf Ýr Atladóttir ferðamálastjóri fjalla um ferðamennsku og áhrif hennar á miðborgina

Allir íbúar miðborgarinnar velkomnir

Stjórnin

18. apríl 2016

ELDRI FRÉTTIR



Gömul mynd

Gamla myndin er af vatnsbera að sækja vatn í Ingólfsbrunn í Aðalstræti um aldamótin 1900. Smellið á myndina til að stækka hana og hér má finna fleiri gamlar myndir úr miðborginni

 

Íbúasamtök Miðborgar Reykjavíkur - Þjónustumiðstöðinni Skúlagötu 21 - 101 Reykjavík - midbaerinn@midbaerinn.is