Fréttir


____________________________________________________

____________________________________________________
Barnamenningarhátíð í Reykjavík verður haldin vikuna 19. – 25. apríl. Hátíðin fer fram víðsvegar um borgina; ofan í sundlaugum, uppi í Esjuhlíðum, á skólalóðum, á öldum ljósvakans og á götum úti.
Hátíðin fjallar um menningu barna, menningu með börnum og menningu fyrir börn.
Fátt er skemmtilegra en að taka þátt í að skapa fallega hluti eða efna til viðburða sem gleðja aðra. Við lærum að þekkja okkur sjálf og náungann ögn betur. Síðast en ekki síst færir listin okkur oft nýtt sjónarhorn á tilveruna og gerir okkur að þroskaðri einstaklingum.
Fersk sýn barna á veruleikann í kringum sig veldur því raunar að þau standa mörgum fullorðnum listamönnum framar í listsköpun. Listaverk þeirra eru fersk, ný og full af gleði.
Þema hátíðarinnar að þessu sinni verður forvitni og kennir ýmissa forvitnilegra grasa í dagskránni.
Hátíðin er sett í Hljómskálagarðinum mánudaginn 19.apríl 10:00 - 11:30
Nánari upplýsingar um dagskrá hatíðarinnar má finna á barnamenningarhatid.is
____________________________________________________
____________________________________________________
____________________________________________________
Íbúar í Miðborg Reykjavíkur geta haft áhrif á nýtt aðalskipulag Reykjavíkurborgar
Skipulagsráð Reykjavíkurborgar hefur ákveðið að leita til íbúa borgarinnar vegna undirbúnings að nýju aðalskipulagi 2010 til 2030.
Fundur með íbúum Miðborgar verður haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur fimmtudaginn 26. nóvember 2009 kl. 17:00 til 18:30.
Við hvetjum alla íbúa Miðborgar Reykjavíkur til þess að koma og taka þátt.
Þetta er ykkar borg - ykkar hverfi - ykkar hagsmunir.
* Umræður um skipulag í hverfinu þínu - vinnuhópar
* Hugmyndasmiðja - hugmynda- og teiknivinna með arkitektum
* Vinnusmiðja fyrir börnin með Myndlistaskóla Reykjavíkur. Engin ástæða til að komast ekki vegna barnanna.
Formaður skipulagsráðs, aðrir ráðsmenn og embættismenn borgarinnar halda utan um og stýra fundinum.
Fundurinn er opinn öllum íbúum Miðborgar.
Sjá einnig heimasíðu Reykjavíkurborgar: http://www.rvk.is/DesktopDefault.aspx/tabid-757/521_read-17240/
____________________________________________________
____________________________________________________
____________________________________________________
____________________________________________________

____________________________________________________
Vakin er athygli á því að Reykjavíkurborg sækir ekki garðaúrgang til borgarbúa í vor
Reykjavíkurborg leitar nú liðsinnis borgarbúa við að fjarlægja garðúrgang annars vegar með því að íbúar fari með hann á endurvinnslustöðvar Sorpu eða nýti hann til moltugerðar í eigin garði.
Moltugerð eða Sorpa
Á Endurvinnslustöðvum Sorpu er tekið við garðaúrgangi og greinaafklippum íbúum að kostnaðarlausu. Á vef Sorpu eru upplýsingar um staðsetningu stöðvanna. Tekið er á móti úrgangi alla virka daga frá kl. 12:30 - 19:30 og um helgar kl. 10:00 - 18:30.
Margir garðeigendur hafa komið sér upp aðstöðu til moltugerðar og nýtist garðúrgangurinn vel hjá þeim. Þeir sem vilja verða sjálfbærir og umhverfisvænir geta sótt leiðbeiningar á vef Reykjavikurborgar.
Sjá frétt á vef Reykjavíkurborgar: http://www.rvk.is/desktopdefault.aspx/tabid-512/436_read-14776/
____________________________________________________
Fréttatilkynning frá stjórn Íbúasamtaka miðborgar
Þann 28. nóvember 2008 var formanni skipulagsráðs færður undirskriftalisti gegn niðurrifi húsa við Laugaveg ásamt nýlegri samþykkt stjórnar Íbúasamtaka miðborgar.
____________________________________________________
Fyrsti aðalfundur Íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur í Iðnó í dag kl. 20:00
Ný stjórn Íbúasamtaka miðborgar Reykjavíkur verður kjörin á fyrsta aðalfundi samtakanna sem haldinn verður í Iðnó í dag,
miðvikudag 19.nóvember kl.20.00.
Eva María Jónsdóttir kynnir skýrslu fráfarandi stjórnar á fundinum, en hún lætur jafnframt af störfum sem formaður samtakanna.
Tekið verður við framboðum til stjórnar á fundinum.
Íbúar í miðborginni eru hvattir til að mæta á aðalfundinn og láta að sér kveða um sameiginleg hagsmunamál.
Framsögumaður verður Hjörleifur Stefánsson arkitekt og íbúi í miðbænum. Hann mun segja frá niðurstöðum starfshóps um umhverfisvernd miðbæjarins.
Á fundinum verða lagðar fram tillögur að breytingum á lögum félagsins. Áhugasamir geta kynnt sér tillögurnar Hér.
Íbúar miðborgarinnar geta gengið í samtökin með því að senda póst á stjorn@midbaerinn.is þá eru þeir sjálfkrafa komnir á póstlista samtakanna og fá eftirleiðis sendan póst um starfsemi samtakanna, fundi og félagslíf eftir því sem við á.
Íbúasamtök miðborgar voru stofnuð í mars 2008 og hafa meðal annars að markmiði að stuðla að samkennd og vera samstarfsvettvangur íbúa í hverfinu auk þess að vinna að framfara- og hagsmunamálum.
Stjórn Íbúasamtaka Miðborgar Reykjavíkur.
____________________________________________________
Viðhald eldri húsa - ókeypis fræðsla.
Fræðslustofa um viðhald og viðgerðir eldri húsa er á Árbæjarsafni. Þar liggur frammi fjölbreytt fræðsluefni sem kemur að gagni fyrir þá sem standa fyrir viðhaldi og endurbótum á eldri húsum.
Sérfræðingar á vegum Húsafriðunarnefndar ríkisins og Minjasafns Reykjavíkur verða með viðtalstíma í fræðslustofunni alla miðvikudaga frá kl. 16 til 18.
Einnig veita þeir ráðgjöf á sama tíma í síma 411 6333. Ráðgjöfin er endurgjaldslaus.
Að Fræðslustofunni standa Húsafriðunarnefnd ríkisins, Iðan fræðslusetur og Minjasafn Reykjavíkur.
____________________________________________________
Ný verslun
Til stendur að Bónus opni verslun við Hallveigarstíg. Ekki langt frá er hverfisverslunin Grundarkjör. Vonandi koma þessar búðir til með að styrkja hver aðra, frekar en að samkeppnin frá lágvöruverslun geri út af við enn einn kaupmanninn á horninu. Íbúasamtökin trúi því að fólk vilji hafa báðar þessar verslanir innan hverfisins. Reynum nú öll að mæta í búðina fótgangandi, en ekki á bíl, þegar þess er nokkur kostur.
____________________________________________________
Stofnfundur
Íbúasamtök miðborgar Reykjavíkur voru stofnsett á fundi í Iðnó þann 11. mars 2008. Á fundinn mættu rúmlega 100 manns. Á fundinum var kosin bráðbirgðastjórn, 7 aðalmenn og 3 varamenn.
____________________________________________________





