ÍBÚASAMTÖK MIÐBORGAR REYKJAVÍKUR

News


Fréttir
Um samtökin
Lög
Starfið
Fundargerðir
Greinar


Íbúasamtökin á Facebook



Börnin í Miðbænum

Annað málþing vetrarins um miðborgina þar sem íbúarnir hafa orðið verður haldið 12. nóvember kl. 13 í Spennistöðinni, félags og menningarmiðstöð Miðborgar. Íbúasamtök Miðborgar, Foreldrafélag og Nemendafélag Austurbæjarskóla og foreldrafélög leikskóla í hverfinu standa að málþinginu og er það hluti af verkefninu Heil brú Þar verður fjallað um aðstæður barna og unglinga í miðborginni. Spurt verður hvað sé fjölskylduvænt hverfi og hvort miðborgin uppfylli öll skilyrði til að teljast fjölskylduvæn.

Málþingið verður með þeim hætti að fyrst flytja íbúar stutt framsöguerindi en síðan verður hópavinna. Hóparnir munu fjalla um efni eins skóla og leikskóla, aðstöðu barna og unglinga til tómstundaiðkunnar, leiksvæði, Spennistöðina og umferðaröryggi og almenningssamgöngur. Hóparnir munu sammælast um nokkrar tillögur til úrbóta og lykilspurningar til að beina til stjórnmálamanna og embættismanna sem sitja í pallborði. Þegar þeim hefur verið svarað er orðið laust.

Dagskrá

Framsöguerindi:
Dagur B Eggertsson
Hvernig er að alast upp í 101? Innlegg frá ungu fólki
Spennistöðin fimm árum síðar – Innlegg frá húsráði

Hópavinna um eftirfarandi málefni:
Skólar og leikskólar
Frítími – íþróttir og tómstundir
Spennistöðin
Leiksvæði, garðar og torg
Strætó og umferðin
Allt hitt. Það sem ekki rúmast í hinum hópunum

Í pallborði sitja:
Dagur B Eggertsson borgarstjóri
Guðrún Kaldal framkvæmdastjóri Tjarnarinnar
Kristín Jóhannesdóttir skólastjóri Austurbæjarskóla
Sigþrúður Erla Arnardóttir framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Miðborgar
Skúli Helgason formaður Skóla og frístundaráðs
Þórgnýr Thoroddsen formaður Íþrótta og tómstundaráðs
Ólöf Örvarsdóttir sviðsstjóri Umhverfis og skipulagssviðs

 

Tilbaka



Gömul mynd

Gamla myndin er af Graf Zeppelin-loftfari yfir miðbænum 1930. Smellið á myndina til að stækka hana og hér má finna fleiri gamlar myndir úr miðborginni

Íbúasamtök Miðborgar Reykjavíkur - Þjónustumiðstöðinni Skúlagötu 21 - 101 Reykjavík - midbaerinn@midbaerinn.is