ÍBÚASAMTÖK MIÐBORGAR REYKJAVÍKUR |
||||||||||
|
Ferðamannagisting í MiðborginniDagur B Eggertsson borgarstjóri Erindi: Stjórn Íbúasamtaka Miðborgar skorar á borgaryfirvöld að setja nú þegar reglur sem takmarka fjölda Gististaða (Flokkur II) og Gistiheimila (Flokkur III) í hverfinu okkar - Miðborg. Greinargerð: Á síðustu árum hefur útleiga á íbúðum og herbergjum til ferðamanna í miðborginni aukist mikið. Lögum um skammtímaleigu, sem taka gildi um áramót, er ætlað að koma böndum á hinar svokölluðu „airbnb“ leiguíbúðir (Flokkur I í lögum um gistingu). Fullvíst er að í framhaldinu verður aukin þrýstingur á að fá heimildir til að reka gistingu í flokki II og flokki III. Á málþinginu Sambýlið við ferðaþjónustuna sem Íbúasamtök Miðborgar gengust fyrir nýlega komu fram miklar áhyggjur íbúa af því að stöðugt meira húsnæði í miðborginni er nýtt í ferðamannagistingu. Þessi nýja ásókn í húsnæði hefur orðið til þess að fasteigna og leiguverð hefur hækkað svo mikið að ungt fólk hefur ekki lengur efni á að búa í miðborginni og afleiðing þess er að börnum fækkar í eina grunnskóla hverfisins og deildum er lokað í leikskólum. Þrátt fyrir uppbyggingu nýs íbúðahúsnæðis í miðborginni hefur íbúatala miðborgarinnar ekki hækkað í samræmi við það og ástandið í húsnæðismálum mun óhjákvæmilega rýra gildi hverfisins sem íbúahverfis. Hætta er á því að sama þróun verði víða í austurhluta miðborgarinnar og í kvosinni þar sem flestir íbúar eru flúnir og það ástand er heldur ekki þénanlegt fyrir ferðaþjónustuna því líklegt má telja að ferðamenn hafi lítinn áhuga á að búa í slíku hverfi. Veruleg hætta er á því að samfélagslegum hagsmunum og hagsmunum ferðþjónustunnar til lengri tíma sé fórnað ef engin bönd verða sett á núverandi þróun. Við þessu verður að bregðast strax! Íbúasamtök Miðborgar skora því á borgaryfirvöld að setja nú þegar reglur um fjölda íbúða og herbergja í skammtímaútleigu. Okkar hugmynd er að miða við að hámarkið verði 15% íbúðarhúnæðis því ef fram heldur sem horfir er hætta á að fjölskyldugerðin foreldrar með börn á leik- og grunnskólaaldri verði nánast í útrýmingahættu í miðborginni og aðrir sem hér búa eins konar sýniseintök um íbúa. Með vinsemd og virðingu Stjórn Íbúasamtaka Miðborgar: Samrit:
|
Gömul myndGamla myndin er af Graf Zeppelin-loftfari yfir miðbænum 1930. Smellið á myndina til að stækka hana og hér má finna fleiri gamlar myndir úr miðborginni |