ÍBÚASAMTÖK MIÐBORGAR REYKJAVÍKUR |
||||||||||
|
Stjórnarfundur 20. mars 2014Haldinn á Bergþórugötu 4 kl. 17:30 Mættir voru: Sverrir, Einar, Guðrún, Benóný, Magnús og Hlín sem ritar fundargerð. 1- Niðurstaða kosningar um “Betri Reykjavík” liggur fyrir í dag. 2- Umræða um veitingaleyfi í flokki II fyrir Kol á Skólavörðustíg. Opnunartími leyfilegur til kl. 23:00. 3- Þróunaráætlun Reykjavíkur í endurskoðun. Drög voru send til “Miðborgin okkar”, sem eru hagsmunasamtök verslunarmanna við Laugaveginn. Íbúasamtök miðborgar, sem eru óháð hagsmunasamtök íbúa í miðbænum fengu hinsvegar engar upplýsingar. Stjórn Íbúasamtakanna hefur komið athugasemdum og óskum á skýringu á framfæri við hlutaðeigandi. Ekki fleiri mál á dagskrá og fundi slitið kl. 18:15 |
Gömul myndGamla myndin er af Hótel Íslandi sem stóð á horni Austurstrætis og Aðalstrætis. Smellið á myndina til að stækka hana og hér má finna fleiri gamlar myndir úr miðborginni |