ÍBÚASAMTÖK MIÐBORGAR REYKJAVÍKUR |
||||||||||
|
Stjórnarfundur 9. janúar 2013Haldinn á Bergþórugötu 4 kl. 17:30 Mættir eru: Sverrir, Benóný, Guðrún, Halla Bergþóra, Þórgnýr og Hlín sem ritar fundargerð. 1- Laugavegur sem göngugata / bílagata. PPS “Pedestrian Priority Street”, hugmyndin rædd. 2- Kynnisferðir / Flybus eru stærri í sniðum og fyrirferðarmeiri á götum borgarinnar en strætó. Ákveðið að senda fyrirspurn til Umhverfis og samgöngusviðs. 3 - Engin svör hafa borist frá samtökum kráareigenda varðandi hugmynd Íbúasamtakanna um merkingu við vínveitingastaði þar sem hvatt er til að taka tillit til íbúa, varðandi hávaða á götum úti. 4 - Ný Byggingareglugerð. Ekkert er fjallað um gömul hús og endurbyggingu gamalla húsa. Aðal málið er að í lögin vantar ákvæði um gildissvið laganna þ.e. að þau gildi takmarkað þegar um gömul hús er að ræða. 5 - Skólavörðustígur 40. 6 - Rætt um að borgin taki virkan þátt og kosti lagningu hitalagna í gangstettum þeirra gatna sem er verið að endurnýja s.b.r. Frakkastígurinn. Ekki voru fleiri mál á dagskrá og fundi slitið kl. 18:30 |
Gömul myndGamla myndin er af Hótel Íslandi sem stóð á horni Austurstrætis og Aðalstrætis. Smellið á myndina til að stækka hana og hér má finna fleiri gamlar myndir úr miðborginni |