ÍBÚASAMTÖK MIÐBORGAR REYKJAVÍKUR |
||||||||||
|
Stjórnarfundur 4. nóvember 2014Haldinn á Bergþórugötu 4 kl. 17:30 Mættir voru: Sverrir, Einar, Guðrún, Benóný, Magnús og Hlín sem ritar fundargerð. 1- Hverfisráð, áformar að hafa opna hverfisfundi einu sinni í mánuði. Ekki komið til framkvæmda en verður auglýst og boðað til fundanna af Hverfisráði. 2- Hverfisráðsfundir eru haldnir einu sinni í mánuði. Á síðasta fundi var rætt um að Hverfisráð beitti sér fyrir því að auka gagnsæi á styrkveitingum Bílastæðasjóðs. Umræður um þetta mál hafa verið á tveimur síðustu fundum í Hverfisráði. 3- Hverfisráð og “Betri hverfi”. Virðist sem Hverfisráð hafi ekkert um það að segja hvernig fjármunum til verkefna er varið. 4- Magnús, minnir á að við höfum fundað með öðrum hverfisráðum um mikilvægi þess að vinna saman til að styrkja stöðu íbúasamtaka í borginni. 5- Á síðasta Hverfisráðsfundi var kynnt tillaga Skipulagsráðs varðandi Grettisgötu 17. 6- Benóný er fulltrúi Íbúasamtakanna í húsráði Spennustöðvarinnar, aðrir aðilar að húsráðinu eru Félagsmiðstöðin 101, Austurbæjarskóli, Foreldrafélag Austurbæjarskóla, nemendur Austurbæjarskóla og ungmenni í hverfinu. Búið er að afhenda húsráðinu Spennistöðina, formlega. Félagsmiðstöðin er smásaman að flytja sitt dót þangað. Skólinn nýtir aðstöðuna 8 - 14 virka daga í mánuði. Eftirmiðdaga og kvöld nýtir Félagsmiðstöðin aðstöðuna. Þriðjudagskvöld og helgar eru til ráðstöfunar. Formleg opnun Spennistöðvarinnar verður 28. nóvember kl. 17:00 - 19:00 og verður dagskrá sem fyrrverandi og núverandi nemendur hafa undirbúið. 7- Kvenfélag Hallgrímskirkju. Í athugun að athuga hvort að kvenfélagið vilji taka að sér að vera bakhjarl félagsmiðstöðvarinnar í Spennistöðinni. 8- Sverrir og Einar fóru á fund Umboðsmanns borgara í framhaldi af fyrirspurn Íbúasamtakanna til Borgarlögmanns. Erindið var að spyrjast fyrir um aðkomu embættisins að úthlutun styrktarsamninga. Var farið yfir málið og mun Umboðsmaður taka það upp aftur á eigin vegum. 9- Aðalfundur, umræða og uppástungur um gestafyrirlesara. Fundi slitið kl. 18:30 |
Gömul myndGamla myndin er af Hótel Íslandi sem stóð á horni Austurstrætis og Aðalstrætis. Smellið á myndina til að stækka hana og hér má finna fleiri gamlar myndir úr miðborginni |