ÍBÚASAMTÖK MIÐBORGAR REYKJAVÍKUR

News


Fréttir
Um samtökin
Lög
Starfið
Fundargerðir
Greinar


Íbúasamtökin á Facebook



Stjórnarfundur 25. október 2010

Þann 25. október kom stjórn íbúasamtaka miðborgar saman til fundar á Klappastíg 1a og hófst fundurinn kl. 17:00

Mætt voru: Magnús Skúlason, Guðrún Janusdóttir, Halla Bergþóra Pálmadóttir, Arnar Kristjánsson og Hlín Gunnarsdóttir.

1- Þetta var síðasti stjórnarfundur fyrir aðalfund og voru helstu umræðuefni fundarins í tengslum við aðalfundinn.

2- Varðandi spennustöðina á lóð Austurbæjarskólans þá er málið í jákvæðum farvegi og mun verða fylgt áfram á Magnúsi og Benóný fyrir hönd íbúasamtakanna.

3- Ákveðið að gera alvarlegar athugasemdir við samþykkt borgarraðs um opnunartíma veitingahúsa á næsta fundi Hverfisráðs.

Meðfylgjandi er bókun sem gerð var á fundi Hverfisráðs 28.10 2010.

Bókun Íbúasamtaka miðborgar, vegna samþykktar Borgarráðs frá 13.10.2010 um breytingar á opnunartíma áfengisveitingastaða, í Hverfisráði miðborgar þann 28.10. 2010.

Stjórn íbúasamtakann lýsa yfir megnri óánægju með ofangreinda samþykkt sem felur í sér klukkustundarstyttingu í tveim áföngum á einu ári. Í samþykktinni kemur ekkert fram um varnir gegn hávaða eða vörnum gegn ofbeldismönnum sem ganga lausir og eru aðallega á ferðinni eftir kl. 3.00. Röksemdafærslu Íbúasamtakanna og lögreglu er að finna í álitum, samþykktum og bréfum sem ekki verða endurtekin hér.

Þá lýsir stjórn Íbúasamtaka yfir ennþá meiri óánægju yfir afstöðu Hverfisráðs sem hefur tekið undir ofangreindar tillögur sem nú hafa verið samþykktar í Borgarráði. Íbúasamtökin höfðu vænst þess að Hverfisráðis myndi að einhverju leyti hlusta á raddir íbúa.

Það má fullyrða að hvergi á byggðu bóli megi finna það skrílsástand sem tíðkast í Reykjavík um hverja helgi og stafar ekki síst af of löngum opnunartíma áfengisveitingahúsa.

F.h. stjórnar Íbúasamtaka miðborgar

Magnús Skúlason

Tilbaka



Gömul mynd

Gamla myndin er af Hótel Íslandi sem stóð á horni Austurstrætis og Aðalstrætis. Smellið á myndina til að stækka hana og hér má finna fleiri gamlar myndir úr miðborginni

Íbúasamtök Miðborgar Reykjavíkur - Þjónustumiðstöðinni Skúlagötu 21 - 101 Reykjavík - midbaerinn@midbaerinn.is